15.10.2008 | 11:30
Kreppuklinkið allsráðandi í Íslensku samfélagi
Nýr texti við lagið söknuður eftir Villa Vill..
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
Og heldur blankur, því er verr
Ef væri aur hjá mér, væri ég glaður
Betur settur en ég er
Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.
Við gátum spreðað, gengið um,
gleymt okkur í búðunum.
Engin svör eru við stjórnarráð
Gengið saman hönd í hönd,
Saman flogið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja lán.
Horfið er nú hlutabréf og lánsfé
Í veski mínu hefur eymdin völd
Í dag ræður bara sultarólin
Nú einn ég sit um skuldavönd
Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.
Ég horfi yfir bankann minn
Hugsi hvort hann hleypi mér inn
Ég alltaf gat treyst á þig
Í að fjármagna mig
Ég reyndar skulda allstaðar
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
(Höf. ókunnur).
Snilldartexti.. er reyndar að skrifa þennan texta í augnablikinu í rómverskri skrift.. mega flott skrift ;) Lokaritgerðin er á góðu róli.. Var að fá uppkastið í hendurnar áðan og reyndar ótrúlega lítið af einhverju sem ég þarf að laga. Mikið líður manni vel þegar allt gengur vel, svona miðað við allt :) Nú er ég sko búin að bretta upp ermarnar varðandi skólann og farin á fullt.. Þó svo mér hafi gengið vel í fyrra, þá er alltaf hægt að gera betur og ég veit vel að ég var ekki 100% í gírnum síðasta haust.
Rölti niðrí bæ og keypti mér kaffi með kreppuklinki.. smart ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2008 | 18:13
ísland.. best í heimi
Kreppa, Pesti, ritgerð, og veturinn er mættur...
Þetta er bara of mikið að taka ofan í sig á tveim dögum.. Er það ekki eða? Áfengið að fara að hækka um 11,5%, bensínið búið að hækka um fjórar krónur.. Pesti búin að tröllríða fjölskyldunni síðustu viku og minnka kílóin? Nei, greinilegt að þau vita að það sé kreppa í gangi og spikið búið að ákveða að halda sér sem fastast, svona ef ske kynni að ég ætti ekkert til í matinn einn daginn :) En ég skrapp út í samkaup í gær, keypti mér smotterí.. sem kostaði ekki nema 4.500 og pokinn var ekki einu sinni fullur.. Það er allt svo ógeðslega dýrt.. Man þegar ég var nú að vinna í sjoppunni þarna í den og svalinn var bara 55krónur, brauðið 235 og mjólkin 72. hehe Veit reyndar ekkert verðið á þessu í dag.. Enda er ég ekki sú manneskja sem tekur miðann eftir að ég er búin að borga og skoða hann hversu allt er dýrt. Gerði það reyndar eftir þessa ferð mína í Samkaup í gær og ákvað að nú væri ekki verslað nema það sem ég þarf! Er þá ekki bara um að gera að gera slátur, hafa lifur og hjörtu í matinn og fleiri svona "innmat"?
Jæja ég ætla að halda áfram að njóta þess að gera ritgerðina mína með pestina skemmtilegu upp á arminn og láta litla gaurinn minn passa mig:) Svo mikil elska :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.9.2008 | 01:40
kaffiblettur í heila
ÉG held að ég sé búin að drekka yfir mig af kaffi í dag.. Djísús.. Klukkan er hálf tvö og ég er bara ekkert á leiðinni í háttinn. Er med ofvirkni á hæsta stigi og er að leiða hugann að því að skúra og skipta um á rúminu. Aron fór til pabba síns fyrr í kvöld og ég er strax farin að telja niður.. Byrjaði eiginlega bara á því í gær.. Hlakka svo til að fá hann heim og knúsast í honum og kúra.
Lokaritgerð lokaritgerð.. Finnst ég samt bara vera eiginlega í fríi því ég er bara heima að skrifa hana... Weird...
Vinna annaðkvöld í Sjallanum. Hlakka smá til, enda fínasti félagsskapur með mér annaðkvöld... Allir að dröslast á barinn til mín þar sem ég gjörsamlega fer á kostum. Hendandi flöskum upp í loftið og þvílíku tilþrifin í gangi!! Finnst ykkur það ekki líklegt?:) En þetta er samt skemmtileg vinna.
Aron er byrjaður í íþróttaskólanum og skemmtir sér vel þar, einnig skráði ég hann í Tónrækt, þar sem hann og Embla eru saman, og þeim finnst þetta alveg frábært:)
hey nenni að blogga? NEI.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.9.2008 | 22:18
bloggi blogg
Var á smá spjalli við Ingu vinkonu í dag og var að segja henni frá því að Aron væri að "útskrifast" úr leikskólanum á sama tíma og ég útskrifast úr Myndlistarskólanum næsta vor. Var varla búin að ljúka við þá setningu þegar ég fékk bara íllt í magann. Trúi því varla hvað hann er stór orðinn, nær mér alveg upp að nafla, og þá er nú ekki mikið eftir:) Hef ekki beint talið mig smávaxna en vá hvað mér finnst ég lítil þegar hann stendur alveg upp við mig.
Snorri og Ásta farin til Kína, og maður er strax farin að sakna þeirra. Það er alveg útí hött að ég sjái hann ekki aftur fyrr en um jólin. Aroni finnst það samt magnað, því þá hefur hann meira til að hlakka til held ég:) Hann er allavega mikið að tala um jólin og heimkomu Snorra þessa daganna.
Það er ofurkósí kvöld hér hja mér núna. Skrapp í rúmfó í dag og keypti mér kerti ásamt fleiru drasli og kveikti á nokkrum áðan. Alltaf svo hlýlegt og um að gera að hafa svona góða stemningu þegar litli gaurinn er farinn í háttinn, og eiga smá stund fyrir sjálfa sig:) Reyndar felst sú stund aðallega í að vinna í tölvunni og laga til. Veit ekki hvað það er langt síðan ég tók mér ræmu, eða leigði spólu og horfði á video ( reyndar DVD þar sem afar fáir eiga video) Eins og hvað maður stundaði það hérna áður fyrr hehe.. Nú slysast maður óvart í bíó, held ég hafi farið 2 í bíó það sem af er þessu ári, Hulk og Wanted. Dauðlangar enn að sjá Batman, en ætli það verði ekki bara "næsta" mynd sem verður tekin á leigu..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.8.2008 | 22:28
mývatnsferð
átti snilldar laugardag með Kötu og Ingu.... blogga fljótlega um það annars þá eru myndir úr þessari ferð á Facebookinu mínu :) Hendi myndum hér inn fljótlega .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.8.2008 | 12:56
finally blog
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.7.2008 | 22:50
ofurbloggarinn mættur á svæðið
Ég náði að starta nýrri vinnuviku á vondum draumi. Draumurinn var eintóm hamingja út í gegn en þegar ég vaknaði leið mér bara strax ílla og mánudagurinn var vangefinn þar af leiðandi, allavega í vinnunni. Asnalegt... En ótrúlegt hvað draumar ná oft til manns. Leið strax svo mikið betur þegar ég kom heim og eyddi restinni af deginum með Aroni mínum. En ekki hvað :)
Ég gerði samt það afrek í dag að slá garð sem búinn var til í helvíti. Get svo svarið það. Ég var ógeðslega lengi að slá hann, 4 klukkutíma. Bæði af því að hann var ógeðslega stór, ógeðslega mikið gras á honum ( pottþétt einhver sem hefur ákveðið að sleppa að slá í vikunni á undan mér.. semsagt blokkin mín) og dálítið blautt, eða vel rakt grasið og brjálað rok - hvað var ég samt að spá að gera þetta í dag? JÚ jú, þurfti að klára þetta fyrir morgundaginn :) Þetta hamaðist ég og hjakkaðist við í allan dag, og var alveg við það að tapa geðheilsunni. Anyway,, þá náði ég að klára þetta á mettíma vil ég halda, lagðist í grasið og dró djúpt andann. takk fyrir pent, þarf ekki að gera þetta aftur í sumar :D Lét mig dreyma um pizzu og bjór í múttu túttu húsi og knúsi frá henni þar sem hún sagði mér hvað hún væri stolt af mér og kyssti mig á ennið í þeirri sömu andrá og hún rétti mér ískalda bjórinn minn.. En í staðinn benti hún mér á afganga af hakki inn í ísskáp.. Bjóst við að sitja ein við eldhúsborðið þangað til Aron kom og fékk sér meira að borða til að mömmu sinni myndi nú ekki leiðast:) hehe..
helvítis áreynsla á fingrunum mínum í dag, ætti því ekki að berja á lyklaborðið lengur og fara frekar að sofa:)
Góða nótt..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.7.2008 | 22:25
hata fyrirsagnir
Stundum á ég þannig daga að mér hreinlega langar að gera allt í heimi á því augnabliki og kaupa mér allt sem mig dreymir um. Inga og hennar family eru á leið til Tenerife á þriðjudaginn og mikið agalega væri ég til að planta mér og Aroni ofan í ferðatöskuna hennar og fara bara með! Langar mikið að fara eitthvað með Aron:) Hann mundi sko fíla sig í tætlur og jesús minn hvað hann yrði tanaður .. öss ! hehe.
Það styttist í sumarfríið mitt! Já!!!!! Ég er sko að fara í frí í tvær vikur og við mæðginin erum að skipuleggja þetta frí okkar frá degi til dags. Aldrei að vita samt nema við skreppum suður eina helgina og dúllum okkur þar. Held það sé sko must! Annars erum við að tala um útilegur og sund sund sund og fleira ótrúlega skemmtilegt! En tvær vikur enn í það, og við erum sko að telja niður hehe:)
Annars erum við búin að eiga yndislega helgi saman! Og nú er hann kominn í sumarfrí og verður hjá mömmu á daginn á meðan ég er að vinna í þessar 2 vikur. Hata að vinna þegar ég veit af honum heima í fríi. Finnst ég bara alltaf vera að missa af svo miklu hjá honum.
Skólinn er að fara að byrja bráðum ... reyndar 10 september.. En þessi tími sumars er svo vangefið fljótur að líða. Svo mikið að gerast, afmæli, sumarfrí ;) versló, fiskidagshelgin, og bara helling sem hægt er að láta sig hlakka til!
..... styttist samt í veturinn :)
jæja.. ræs eldsnemma og ég farin að sofa:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2008 | 11:07
4 daga helgi
Lítið að kvarta yfir þessa daganna. Mætti í vinnu klukkan 5 á fimtudagsmorguninn og vann til rétt að verða 3. Síðan frí á föstudeginum og í dag. Aron fór með mömmu og pabba út í Vaglaskóg, og ég var svo að vinna í Sjallanum á Klaas. Það var ágætt bara :) Dagurinn í dag er tekinn í allsherjarþrif. Er búin að fara í gegnum alla skápa og skúffur og henda og endurraða.
Það er samt alltaf nóg að gera hjá manni. Fyrir utan það að mammast alla daga og halda uppi heimili, þá er ég að vinna á daginn og aðra hvora helgi á barnum, og svo er ég búin að fá nokkur verkefni tengt náminu mínu. Ótrúlega gaman þegar það er leitað til manns hvort sem það varðar grafískri hönnun, teikningu, hönnun tattooa, eða hvað sem er.
Svei mér þá ef ég erhreinlega bara ekki að pæla í því að opna aftur barnalandssíðuna hans Arons.. Fyrst verður nú að taka hana í gegn og svona. En sjáums til. Held ég sé samt þekkt fyrir það að koma með einhverja hugmynd en láta síðan aldrei verða neitt af henni... eða líða jafnvel 8 mánuðir or sum áður en hún kemst í framkvæmd. Veit basically ekki afhverju ég geri það.
Jæja, við mæðginin ætlum að breyta í herberginu hans Arons áður en við skellum okkur út í fótbolta.. Djöll gott að vera í fríi :D
Elva.... sem er í fríi ( didda, blikk blikk )
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2008 | 20:27
júhú
Já.. mikið búið að gerast síðan síðast.. Ákvað að breyta lúkkinu á síðunni minni, í smá léttara lúkk :) En ég er alveg að byrja að blogga aftur.. meika það samt ekki í kvöld. Ætla að leggja mig áður en ég mæti í vinnu á eftir..
Ætlaði bara að segja hæ:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Elva Ýr Kristjánsdóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 10767
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

aldis
astarut
hoepfner
sverrir
020262
eyrunelva
ggudrun
helgangunn
hlynurh
hollivals
ninodin
juljul
magga
mynd




